Myndbönd: fyrirlestrar, fundir, ráðstefnur o.fl.

Íslensk strandmenning - staða hennar og framtíð.

Málþing á Akranesi, 4. mars 2024.

Fyrirlestrar, tónlist og umræður um stöðu og fjölbreytileika íslenskrar strandmenningar.

Norrænn súðbyrðingur.

Stutt heimildamynd um handverk við smíði norrænna súðbyrðinga og notkun þeirra. Norrænu strandmenningarfélögin sendu myndina með umsókninni til UNESCO.

Þuríður formaður og Þuríðarbúð.

Upptaka af fræðslufundi Vitafélagsins, 6. mars 2025. Auður Styrkársdóttir, fyrrum blaðamaður og Lýður Pálsson sagnfræðingur héldu erindi.

Hátíð í Norræna húsinu í desember 2021, þegar smíði og notkun súðbyrðinga, hefðbundinna norrænna trébáta, hafði verið sett á skrá Menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) yfir óáþreifanlegan menningararf.